Ultra Soft
Ultra Soft
4.400 kr.
ULTRA SOFT er mýksta Urethane efnið í vörulínu ISI-PACK. Það hefur stífleika Shore-30 og hefur góða höggdeyfandi eiginleika og á sama tíma mjög létt. Efnið tekur sig á 2 mínútum sem er þó mismunandi eftir aðstæðum (hita- og rakastigi).
Þessi vara hentar með ISI-PACK botnum.
Fákaland selur nýtt hóffylliefni og vörur tengdar því frá hollensku fyrirtæki undir vörumerkinu ISI-PACK.
Með reynslu og þekkingu, innblásin af íslenska hestinum, tókst þeim að þróa hið fullkomna hóffylliefni sem styður við hinar mismunandi gangtegundir hestsins.
ISI-PACK er ný kynslóð af hóffylliefni sem hefur verið þróað og hannað úr fullkomlega réttu Urithane efni með margþætta virkni með sérstaka áherslu á hófa hestsins.
Framleiðslulína þeirra samanstendur af eftirtöldum tegundum: Ultra Soft, Soft, Medium, Hard, Sil Black og Repair viðgerðarefninu.
Í hverri túpu er 200ml af fylliefni og ætti því ekki að þurfa meira en eina túpu í hvern hest.



