REPAIR
REPAIR
4.400 kr.
REPAIR er viðgerðarefni ætlað til að lagfæra holur og sprungur í hófnum. Einnig er hægt að byggja upp hæla, tá og hófvegg.
Efnið tekur sig mjög hratt, eða á 30 – 60 sekúndum og mótað eftir 5 mínútur. Auðvelt að vinna með efnið og móta í brotinn hóf.
ISI-PACK REPAIR hefur einstaka viðloðun.
Fákaland selur nýtt hóffylliefni og vörur tengdar því frá hollensku fyrirtæki undir vörumerkinu ISI-PACK.
Með reynslu og þekkingu, innblásin af íslenska hestinum, tókst þeim að þróa hið fullkomna hóffylliefni sem styður við hinar mismunandi gangtegundir hestsins.
ISI-PACK er ný kynslóð af hóffylliefni sem hefur verið þróað og hannað úr fullkomlega réttu Urithane efni með margþætta virkni með sérstaka áherslu á hófa hestsins.
Framleiðslulína þeirra samanstendur af eftirtöldum tegundum: Ultra Soft, Soft, Medium, Hard, Sil Black og Repair viðgerðarefninu.
Í hverri túpu er 200ml af fylliefni og ætti því ekki að þurfa meira en eina túpu í hvern hest.



