Call us: (888) 999-1234

Lotus 1

Lotus 1

145.000 kr.

Virkislaus dýna sem er létt og meðfærileg en á sama tíma er sætið þannig að það veitir afar gott aðhald.

Dýnan er með járni í hnakknefi þannig að hún nuddar ekki herðarkamb hestsins og veitir á sama tíma nægt pláss. Dýnan situr þar af leiðandi afar vel.

Einnig veitir dýnan hryggnum nægt pláss fyrir hreyfanleika.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkur: Panta prufuhnakk

Dýnurnar eru gerðir úr svörtu úrvals nautaleðri og koma í stærðunum 17″ og 17,5″ en hægt er að sérpanta 16,5″ og 18″. Undirdýnan er fyllt með latex.

Hönnunin er þannig að móttökin eru V, það þýðir að þrjár festingar verða að tveimur þannig að dýnan situr betur án þess að renna fram. Löfin eru föst að framan og stutt þannig að fætur knapans eru í betri snertingu við hestinn og af öryggisástæðum eru þau tvöföld.

Sæti og undirdýna eru úr sérstaklega stömu leðri.

Frekari upplýsingar

Stærð:

17, 17.5