Call us: (888) 999-1234

AV5

AV5

275.000 kr.

Sætið á AV5 hnakknum er mitt á milli AV2 og AV4 í dýpt, miðlungs djúpt, það heldur vel utan um knapann en gefur einnig gott svigrúm.

Hann er með flex virki þannig að hann fylgir hesti og knapa vel eftir. Breiddin á virkinu er mitt á milli AV2 og AV4 og er hnakkurinn frekar léttur.

Hnépúðar liggja utan á. Þeir veita knapanum góðan stuðning.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkur: Panta prufuhnakk

Hnakkarnir eru gerðir úr svörtu úrvals nautaleðri og koma almennt í stærðunum 17″ og 17,5″ en hægt er að sérpanta 16,5″ og 18″. Hægt er að velja um hvort undirdýna hnakkanna sé fyllt með latex eða ull.

Hönnunin er þannig að móttökin eru V, það þýðir að þrjár festingar verða að tveim þannig að hnakkurinn situr betur án þess að renna fram. Löfin eru stutt þannig að fætur knapans eru í betri snertingu við hestinn og af öryggisástæðum eru þau tvöföld.

Sætin og hnépúðarnir eru fylltir með latex. Einnig eru sæti og undirdýna úr sérstaklega stömu leðri.

Frekari upplýsingar

Stærð:

17, 17.5, 18

Fylling:

Latex, Ull