Call us: (888) 999-1234

AV4

AV4

265.000 kr.

Sætið á AV4 hnakknum er mitt á milli AV2 og AV3 í dýpt, það heldur vel utan um knapann án þess að þrengja að honum.

Hann er með flex virki þannig að hann fylgir hesti og knapa vel eftir.

AV4 er einnig fáanlegur með nýju virki sem er með stillanlegu hnakknefi, sem þýðir að hnakknefið getur verið mismunandi á breidd frá 27”-29” og passar hnakkurinn því vel á ólíkar hestgerðir.

Hnépúðar liggja utan á hnakknum og eru styttri en á AV1, 2 og 3 hnökkunum og veita því meira pláss fyrir hné en einnig góðan stuðning.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkur: Panta prufuhnakk

Hnakkarnir eru gerðir úr svörtu úrvals kálfaleðri og koma almennt í stærðunum 17″ og 17,5″ en hægt er að sérpanta 16,5″ og 18″. Hægt er að velja um hvort undirdýna hnakkanna sé fyllt með latex eða ull.

Hönnunin er þannig að móttökin eru V, það þýðir að þrjár festingar verða að tveim þannig að hnakkurinn situr betur án þess að renna fram. Löfin eru stutt þannig að fætur knapans eru í betri snertingu við hestinn og af öryggisástæðum eru þau tvöföld.

Sætin og hnépúðarnir eru fylltir með latex. Einnig eru sæti og undirdýna úr sérstaklega stömu leðri.

Frekari upplýsingar

Stærð:

17, 17.5, 18

Fylling:

Latex, Ull