Description
Hnakkarnir eru gerðir úr svörtu úrvals kálfaleðri og koma almennt í stærðunum 17″ og 17,5″ en hægt er að sérpanta 16,5″ og 18″. Hægt er að velja um hvort undirdýna hnakkanna sé fyllt með latex eða ull.
Hönnunin er þannig að móttökin eru V, það þýðir að þrjár festingar verða að tveim þannig að hnakkurinn situr betur án þess að renna fram. Löfin eru stutt þannig að fætur knapans eru í betri snertingu við hestinn og af öryggisástæðum eru þau tvöföld.
Sætin og hnépúðarnir eru fylltir með latex. Einnig eru sæti og undirdýna úr sérstaklega stömu leðri.
Reviews
There are no reviews yet.